...
Helgin var svosem ágæt. Allavega föstudagurinn. Ég og Harpa vorum edrú en hitt liðið var að drekka. Sólrún og Magga voru alveg svakalegar.
Laugardagurinn var eiginlega bara glataður sko. Ekki einu sinni hægt að segja frá honum.Planið fyrir næstu helgi er að redda júróvisjon partýi og djamma feitast!
Silvía Nótt veeeerður að rústa þessu! Eða þúst, ekki vinna. Bara lenda ofarlega! 
Hún er snillingur!
En jæja ég ætla að fara að gera eitthvað af viti. Svona til tilbreytingar.
Lag dagsins: No One Knows - Pendulum
Ég kveð að sinni.
- Sandra M!
Einu sinni var!
Mig langar til útlanda. Mig langar í langa útileigu langt langt í burtu. Mig langar í sumarbústaðarferð. Mig langar í ískalda á. Mig langar að hjóla e-t lengst út í rassgat og gleyma mér. Mig langar á línuskauta. Ég vil hafa gott veður á hverjum einasta degi. Ég hlakka til helgarinnar. Mig langar á Ólafsvöku. Mig langar á þjóðhátíð í Eyjum.
Það var svo sjúklega gott veður í dag. Ógeðslega heitt og þægilegt. Sat fyrir utan Langa eins lengi og ég gat. Svo kom þessi helvítis býfluga í heimsókn. Það eru ekkert nema hjúds býflugur hérna og þær virðast allar vera á móti mér. Nema það sé bara þessi eina og hún elti mig uppi. Kæmi mér alls ekkert á óvart. Hef ekki séð eina litla býflugu síðan þær byrjuðu að koma. Ef það eru komnar fleiri en ein. Þessi sem ég sá í dag var skuggalega lík þeirri sem kom í fyrradag og fyrrafyrradag.

Þessi er rosalega drukkin og skemmtileg e-ð. En þessar sem eru hér eru reiðar og í morðhug. Ég held ég haldi mig inni fyrir í sumar. Minn versti ótti: Köngulær og býflugur.
Jæja, þetta er komið gott í dag. Ætla að horfa á e-a glataða sautjánhundruðogsúrkál mynd!
Sandra M. kveður í bili !
Einn, tveir, þrír, fjórir, fimm!
Virðist enginn annar af þessum svokölluðu vinum mínum nenna á línuskauta. Fúla pakk!
Ég var hjá lækni á fimmtudaginn og hann skoðaði hálsinn minn. Ég fer örugglega í kirtlatöku í júní. Skemmtilegt það. En ég verð allavega ánægð að vera búin að losna við þetta helvíti. Verð þá ekki með streftakokkasýkingu í annari hverri viku!
Ég er alveg búin að plana það að þetta sumar verður að vera skemmtilegt. Bara svona svo maður geti tekið allt þetta rusl út áður en skólinn byrjar. Vera svo duglegur í skólanum og skrópa aldrei! Það er mitt plan.
Ég ætla heldur aldrei að falla á prófum. Af því ég er svo rosalega gáfuð. En sko hérna, ég nenni þessu eiginlega ekki lengur. Nóg í bili bara.
Vill hvetja alla til að commenta! Gogogo!

Ég vil sko að næsta afmæliskakan mín verði svona!

Lag dagsins: Llamalagið
- Sandra M.
Övræææd!
En já, helgin var fín. Skellti mér á eitt stykki ball á föstudaginn með Margréti, Jónínu, Möggu og Lindu. Linda var nú í mjög vafasömu ástandi. En það var geðveikt gaman og er ég búin að láta inn myndir frá því balli. Á laugardaginn fór ég í afmælispartý hjá Guggu, Ástu og Siggu með Aldísi og Guggu. Þar var alveg ágætt. Aldís og Gugga orðnar freekar fullar. Svo restina af kvöldinu var ég bara á rúntinum með Hörpu. Hlustuðum aftur og aftur og aftur á stynjulagið!
Var líka með það á heilanum í allan dag. Sem er erfitt.Ég hef ákveðið að taka mér smá pásu. Allavega næstu helgi. Svo held ég að Lísa komi helgina eftir það. Vona það allavega.
Hún Jónína Rut átti víst afmæli í dag. Eða reyndar í gær. Til hamingju með það Jónína mín. ;** 16 ára skvísa.

Ein mynd af afmælisbarni gærdagsins í lokin.
Ég kveð í bili og gleðilegan maí.
Lag dagsins: Piece of Heaven - Cascada
- Sandra M.
Númer 1?
Ég var einu sinni lítil. Nú er ég stór. Ég er samt ennþá ung, en ég var víst yngri. Ég verð fullorðin. Ég verð gömul, svo aðeins eldri en það. Ég dey. Lífið á ekki að vera flóknara en það.

Ég hef ekki rassgat meira að segja. Langar að segja mikið meira en það bara kemur ekkert. Ritstífla eða eitthvað. Oh well, ég verð þá bara að kveðja í bili.
Endilega skyldu eftir þig nokkur spor. Það er svo gaman.
Lag dagsins: Crazy - Gnarls Barkley
- Sandra M. speechless
Slagsmálaklúbbur!
Ég er að horfa á Fight Club. Í þúsundasta skipti. Fæ ekki nóg af henni. Hugsið ykkur að verða háður svona support meetings. Verða að fara á svona fund til að geta sofið. Það er helvíti fucked up. Ég var líka bara að taka eftir því áðan að Brad Pitt (Tyler Durden) birtist ógeðslega oft í byrjuninni á myndinni. Svona eins og flass. Bara í augnablik. Svo stutt að maður tekur varla eftir því.
Hann heldur að það að eiga hluti, húsgögn, íbúð, geti fullkomnað hann. Þangað til hann kynntist Tyler.
Allavega, páskarnir voru geðveikir. Skemmti mér svo sannarlega vel. Bara takk fyrir djammið allir sem ég djammaði með. ![]()

Commenta svo fólk!
"It's only after we've lost everything that we're free to do anything"
"If you wake up at a different time, in a different place .. could you be a different person?"
Akkurat!
Nú er ég loksins komin heim. Ekkert neitt svakalega ánægð, en það er samt sem áður alltaf best heima. Bara færa heimilið mitt suður! Eða til útlanda!
Páskarnir nálgast óðum. Skíðavikan að byrja í dag? Held það. Þannig það verður vonandi nóg að gera hérna á Ísafirði. Ef ekki þá sting ég af aftur.
Ég var að hugsa um að verða loksins það sem ég var búin að ákveða fyrir nokkrum árum. Indó-evrópsk nunna. Las þetta í einhverri samfélagsfræðibók eða eitthvað þegar ég var í 7. bekk. Þá kom svona ljós og ég vissi hvað ég ætlaði að vera í framtíðinni. Finnst þetta bara gott plan. Þó ég viti ekki aaalveg hvað indó-evrópsk nunna er, en það er allt annar hausverkur. 
Frikki litli að fara að fermast á morgun. Hann er að komst í fullorðinna manna tölu. Eða, verður maður það ekki annars eftir fermingu?
Fara bráðum að koma nýjar en samt gamlar myndir hérna inn. Bíðið bara spennt. 
Ég ætla að biðja alla um að commenta vel og lengi því það commentaði enginn hérna fyrir neðan! Pff! Fools.
Lag dagsins: Fræ - Freðinn Fáviti
- Sandra M.
Olveis!

Gaman að þessu. Ég fer bráðum að fara heim. Langar það samt ekki.
Það er svo vont veður þar, snjór og ógeð. Hata þetta veturveður alltaf hreint. Þúst HALLÓ það er komið vor? Vá, þessir veðurguðir hljóta að vera e-ð tregir. Aldís er á leið suður. Var í brú fyrir svona klukkutíma þannig það fer að styttast í að hún komi.
Og svo förum við á Curtis Adams á sunnudaginn. Fín afþreying.Páskarnir. Lítur út fyrir það að ég fari ekki austur. Langar svo að fara, en langar samt meira heim bara. Farin að sakna rúmsins míns. Ég bara sef ekki eðlilega án hans.
En Reyðarfjarðarferðin verður víst bara að bíða til sumars. Kannski ég plati Aldísi til að kíkja með mér e-ntíman. 
En jæja, hef ekkert meira að segja þannigég kveð í bili.
- Sandra M.
Frábært!
Alltaf vesen á mér með þessar bloggsíður. En ég vona að þessi verði e-ð skárri svo ég þurfi ekki að vera að skipta aftur. En allavega, ætla að fara að halda áfram að gera e-ð í þessari síðu.
