Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

...

19. október 2007 klukkan 23:43

Ókei ég er svo engan vegin að standa mig í þessu blogg dóti! Einu sinni kunni ég að blogga og var bara nokkuð góð en það er eins og mitt passion fyrir bloggi sé horfið! Ég get ekki búið til skemmtilegar sögur lengur. Og finnst mér það eiginlega bara hálf sorglegt. Annars gæti vel verið að þessi blogg kunnátta mín hafi komið frá gelgjunni því það voru einmitt hæstu gelgjupunktarnir sem gáfu frá sér bestu bloggin. Að mínu mati. Þá. En svo gæti líka verið að maður er ekki jafn uppátækjasamur og maður var þá. Þá .. ég hljóma eins og ég sé orðin níræð. En já, annars hefur ekkert merkilegt verið að gerast síðan ég bloggaði seinast. Bara búin að vera að vinna á Bensínstöðinni og svo nýta tímann sem ég er ekki að vinna til að vera með kallinum. Þannig að það gerist nú ekki mikið spennandi. Skellti mér á óvænt djamm á seinustu helgi. Og borgaði ekki krónu fyrir það! Svona getur maður nú verið heppinn stundum.

Þar sem ég var að tala um þessa "gömlu" tíma áðan þá finnst mér eins og ég sé að verða gömul! Það var allt svo skemmtilegt þegar maður gat gleymt sér í endalausu djammi og skemmtilegheitum. Og svo kom preggó season. Þá urðu allt í einu allir óléttir. Maður var hættur að kippa sér upp við það þegar maður heyrði "þessi þarna er ólétt". Annars samgleðst ég vinkonum mínum tvem sem eru óléttar og ein þeirra bara alveg að fara að eiga. Vooonandi 6. des! ;)

Jæja þetta er bara komið gott í bili. Þarf að vakna í vinnu í fyrramálið. Þannig að ég kveð bara með bros á vör.

- Sandra M.

Þórdís Anna SkúladóttirKannast við þetta!! Maður er bara orðinn of gamall fyrir þetta!! Við þurfum að fara að kaupa okkur ferð til Kanarí og hanga með gamla fólkinu í sólinni;) Líst nú samt alveg ágætlega á það!! Láttu heyra meira í þér skvís (segi ég:S)
Elska þig!
#1
20. október 2007 klukkan 18:41
Heyrðu mig nú.. ég kem bara vestur og við djömmum einsog í gamla daga.. stela fánum og bjórum af fólki :) einsog sumarið 2006 JEEEEEEY!!!!!
#2
22. október 2007 klukkan 16:49
ég er með til kanarí.. :D
en gaman að sjá að þú ert að skrifa einstaka bloggg..:D
#3
24. október 2007 klukkan 15:07
 
Margrét Elly
Halló :-D ég er alltaf til í crasy djamm svo lengi sem ég er ekki að vinna daginn eftir.. !! :) Djamm á laugardaginn ?;) ég er til... ég djammaði báða dagana seinustu helgi.. og hvar vast þú ? ekki á staðnum.. neinei.. finnst þú ekkert standa þig !;) en nógnóg.. ætla að halda áfram að vinna :P Knús til þín !:)
#4
25. október 2007 klukkan 19:22
Heyrðu! maður rétt lítur af þér og þú ert bara komin með kall og eitthvað! Þú ert nú meiri kellingin

Ég var samt að hugsa það í morgun, sjitt hvað það er langt síðan ég var á Flateyri
#5
30. október 2007 klukkan 09:19
 
Sandra Björg
hvernig væri að fara að skrifa eitt blogg eða svo ...
mátt líka alveg kíkja á mitt blogg og kommenta .. !!!
miss you so mutch ..
vona að égt sjái þig um áramótin :*
#6
15. nóvember 2007 klukkan 09:43

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Sandra M. Traustadóttir
  • Netfang: blind_beiglud_bjordos@hotmail.com
  • Staður: Ísafjörður
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Bensínstöðin á Ísafirði
  • Hjúskaparstaða: Á föstu ..
  • Um mig: Ég er 18 ára hörkukvendi frá Ísafirði. Ég á marga góða vini og æðislegan kærasta. :D Mér finnst gaman að djamma, þegar e-ð gerist í þessum blessaða bæ. Svo er náttúrulega alveg geðveikt að rúnta. Er það ekki ? Hmmm.
  • Annað: Ég er api?

Daft Punk - Harder, Better, Faster, Stronger

Prodigy - You'll Be Under My Wheels

Könnun

Hvar ætlar þú að halda þig um páskana?