...
22. janúar 2008 klukkan 13:41
Já .. ég er sko alveg lélegust að blogga. Þó ég hafi allan tímann í heiminum til að blogga endalaus blogg þá einhvernveginn fæ ég mig ekki til að skrifa eitt einasta orð inn á þessa blessuðu síðu. Ég hef líka ekkert mikið að blogga um. Ég kemst ekki suður á Benny Benassi. :/ Sorry stelpur. Ég hef bara ákveðið að fara frekar á Stútung sem er líka mikið ódýrara heldur en að fara suður.
Jámm, ég er víst flutt aftur. Komin niðrí bæ. Fyrir ofan bakarann. Vá, ég er komin með ógeð á því að flytja svona oft. Enda ef þessi íbúð verður seld þá sel ég mig með henni. Ég ætla ekki að flytja aftur! Þetta var í sjötta skipti síðan september 2005 takk fyrir kærlega! Og flutningar eru ekki beinlínis það skemmtilegasta sem ég geri. Ónei.
Eeeen .. ég hef ekki meira að segja. Takk fyrir mig og við bara heyrumst. ;)
- Sandra M.

Jesús minn almáttugur!
13. desember 2007 klukkan 11:44
Já .. eins og kannski margir glöggir tóku eftir að þá var alveg aftaka veður í nótt!
Þetta byrjaði allt þannig að við vorum að fara að sofa. Það var opinn glugginn. Honum þurfti að loka því það var byrjað að hvessa. Allt í lagi með það, svo tók draumalandið bara við. Klukkan fjögur í nótt var komið þetta líka brjálaða veður og við hrökkvum upp frá draumum okkar. Þá er rafmagnslaust. Allt í lagi, svo kemur rafmagnið aftur á. Þá var nú bara ákveðið að rölta aðeins fram og sjá hvað væri nú að gerast þarna úti. Þá varð rafmagnslaust aftur. Þetta var eins og lítið barn hefði komist í on/off takkann á rafmagninu. Þá tók við að horfa út um gluggann á þetta grimma grimma veður og sjá hvort það væri ekki allt eins og það ætti að vera. Og jújú, það var svo. Allt í einu er mér litið niður á bílastæðið. Sé ég þá að hann brúnó er orðinn skakkur! Ég öskra NEI Brúnó! Hjartað á milljón. Aumingja litli Brúnó. Pínupons frá steinveggnum og pínu pons frá Land Cruiser. Heiðar hoppar í gallann og í björgunarleiðangur. Hann bakkar og bakkar. Brúnó slasaðist ekkert. Til allrar hamingju. Það lítur út fyrir að hann Brúnó hafi verndarhönd yfir sér. Því ekki munaði nú miklu að hann hefði slasast. Ef við hefðum vaknað hálftíma seinna hefði þetta verið helmingi verra. Svo kom rafmagnið á. Veðrið róaðist og þá var ákveðið að halda inn í draumalandið aftur. Nema Sandra. Hún gat auðvitað ekki sofnað svona auðveldlega vitandi það að hann Brúnó var einn og yfirgefinn þarna úti. Ennþá í sjokki eftir að hafa barist fyrir lífi sínu við þennan grimma grimma vind. Ég sendi honum góðar og hlýjar hugsanir og vona að honum líði betur í dag. Það hlýtur að vera.
Ég kveð að sinni. Ég varð bara að létta af mér og láta fólk vita að bílarnir geta alveg fokið líka.
- Sandra M. ofsaveðurhatari!

03. desember 2007 klukkan 14:17
Ég held það sé kominn tími á eitt stykki blogg frá mér.
Þó svo ég hafi nú ekki mikið að segja ætla ég að reyna að koma frá mér hérna nokkrum orðum. Já .. það er kominn desember. Jólamánuður. Ég er ekki alveg að finna jólaskapið þetta árið. Það er eitthvað svo týnt. Ég þarf bara að kaupa eina jólagjöf fyrir mjög erfiða manneskju, hann Heiðar, þannig að ég þarf ekki að vera að hlaupa út um allan bæ að reyna að fina jólagjafir fyrir alla .. bara einn. Sem er sko ekki auðvelt á Ísafirði. Það er samt e-ð svo mikil stemning að versla jólagjafir. Kemur mér alltaf í svona smá jólaskap.
Svo á ég nú afmæli eftir 3 daga. Það verður það seinasta. Því eldri en 18 vill ég ekki verða. Svo eru allir að fara að koma heim .. Lísa kemur vonandi í næstu viku, Sandra kemur milli jóla og nýárs held ég, Grétar kemur fyrir áramót, Harpa kemur vonandi um jólin. Og mig hlakkar svo til að fá alla heiiim! Ohh ég get ekki beðið. Hlakkar mest til að fá Söndru og Grétar af því ég er ekki búin að sjá þau svo lengi. Ohh .. þegar allir eru komnir heim þá er ég tilbúin til að komast í jólaskapið! :D
Jæja .. held ég hafi þetta ekkert mikið lengra í dag. Hafið það bara gott. Sakna ykkar allra sem eruð ekki heima!
- Sandra M. kveður ..
...
19. október 2007 klukkan 23:43
Ókei ég er svo engan vegin að standa mig í þessu blogg dóti! Einu sinni kunni ég að blogga og var bara nokkuð góð en það er eins og mitt passion fyrir bloggi sé horfið! Ég get ekki búið til skemmtilegar sögur lengur. Og finnst mér það eiginlega bara hálf sorglegt. Annars gæti vel verið að þessi blogg kunnátta mín hafi komið frá gelgjunni því það voru einmitt hæstu gelgjupunktarnir sem gáfu frá sér bestu bloggin. Að mínu mati. Þá. En svo gæti líka verið að maður er ekki jafn uppátækjasamur og maður var þá. Þá .. ég hljóma eins og ég sé orðin níræð. En já, annars hefur ekkert merkilegt verið að gerast síðan ég bloggaði seinast. Bara búin að vera að vinna á Bensínstöðinni og svo nýta tímann sem ég er ekki að vinna til að vera með kallinum. Þannig að það gerist nú ekki mikið spennandi. Skellti mér á óvænt djamm á seinustu helgi. Og borgaði ekki krónu fyrir það! Svona getur maður nú verið heppinn stundum.
Þar sem ég var að tala um þessa "gömlu" tíma áðan þá finnst mér eins og ég sé að verða gömul! Það var allt svo skemmtilegt þegar maður gat gleymt sér í endalausu djammi og skemmtilegheitum. Og svo kom preggó season. Þá urðu allt í einu allir óléttir. Maður var hættur að kippa sér upp við það þegar maður heyrði "þessi þarna er ólétt". Annars samgleðst ég vinkonum mínum tvem sem eru óléttar og ein þeirra bara alveg að fara að eiga. Vooonandi 6. des! ;)
Jæja þetta er bara komið gott í bili. Þarf að vakna í vinnu í fyrramálið. Þannig að ég kveð bara með bros á vör.
- Sandra M.
...
10. september 2007 klukkan 18:31
Jæja, kominn tími á smá blogg? Ég held það!
Það hefur voða lítið merkilegt gerst síðan ég bloggaði seinast. Byrjaði að vinna á Bensínstöðinni í seinustu viku. Fór til Reykjavíkur í hnakkaþykktarmælingu með Lindu á mánudaginn fyrir viku. Geðveikt gaman. Barnið hoppaði og sneri sér í hringi og allt! :D Þetta er sko pottþétt stelpa! Má ekki vera neitt annað.
Já, ég er að reyna að hætta að reykja. Það gengur ekkert alltof vel en þetta kemur.
Vá ég hef ekkert að segja! Þetta er bara gott í bili.

Sæduuur!

Ég kveð í bili. Kemur kannski annað blogg eftir svona mánuð eða svo. ;)
Np: Here I Come - Fergie
- Sandra M.
Np: Here I Come - Fergie
- Sandra M.
....
25. júlí 2007 klukkan 12:29
Jæja .. nú fer að styttast í að ég komist heim. Ég er farin að sakna allra svoooo mikið!
Þessi sumarbústaður var nú alveg. Í fyrsta lagi er nú varla hægt að kalla þetta sumarbústað þetta er svo lítið. Svo var bara stanslaust stríð við geitunga .. sko HLUNKA geitunga. Þá var ég sko ekki sátt. Potturinn var bara eins og pottur. Ekkert hægt að setja út á hann. Ég er allavega búin að komast að því að ég er ekki svoleiðis manneskja sem get verið í viku í sumarbústað einhverstaðar útí rassgati með bara stöð 1 og ekkert net! Og svo náttúrulega enga vini. :D
Ég fer heim á morgun og vá hvað ég hlakka til!
Ég er í bænum núna af því að mamma þurfti að fara á e-ð námskeið til að læra e-ð stólpa dæmi. Spennó! Svo fer ég að versla á eftir! Jeij. My favourite thing to do. :D
Versló eftir nokkra daga! Og það þýðir einfaldlega bara það að sumarið er alveg að verða búið. :( Ég fer mjög líklega á Akureyri þessa verslunarmannahelgi .. með Aldísi, Önnu, Sigrúnu og örugglega einhverju öðru liði. Man bara ekki alveg. Og ég ætla að skilja alla vini mína eftir á Ísó. Það ætla allir að vera í einhverju mýrarboltakjaftæði! Pff .. glaaatað!

Partý!
En já ég held að þetta sé bara komið nóg, ætlaði bara aðeins að láta vita af mér.
Np: Timbaland - The Way I Are
"Baby if you strip you can get a tip, cause I like you just the way you are"

já nu er sko kátt í búi!!!
18. júlí 2007 klukkan 01:58
- jæja ég er ekki búin að blogga lengi enda hefur ekki verið tími til þess í þónokkurn tíma ég er bæði búin að eignast kærustu og kærasta, og hef þá lítinn tíma til þess að gera e-ð annað en að vera með þeim.
- ég er að fara suður um helgina kaupa mér svolítið af fötum og hlakka bara frekar mikið til.
- ég er í ömurlegri vinnu og ætla sennilegst að hætta á morgun
- kærastan mín er flutt inn til mín
- kærastinn minn getur ekki flutt inn til min, held að það se bara ekki pláss og svo á hann líka heimili hér
- kærustunni minni langar í kærasta (ég er semsagt ekki nógu góð)
- ég er að fara í sumarbústað með mömmu á föstudaginn, og kíki í bæjinn á laugardeginum...
- og já Harpa (kærastan) bloggaði, og kann ekki að blogga...
Speisađ ..
19. júní 2007 klukkan 01:09
Sko .. ég ætla bara að segja frá því sem gerst hefur í punktum.
Það er ekki eins og líf mitt sé búið að vera e-ð spennandi uppá síðkastið en ég væri samt alveg til í að fá aðeins fleiri comment hérna. Þetta er ekkert alveg að ganga. Aðeins þrír sem commentuðu seinast. Pff, ég sem hélt ég ætti vini. :D
Svo er ég komin með mæspeis síðu. www.myspace.com/sandraemm
Ég kveð í bili og vona að þið eigið æðislega næstu daga. ;)
Np: Beautiful Girls - Sean Kingston
"You'll have me suicidal, suicidal"
- Sandraemm ! .. VODD!
- Ég fór suður seinasta mánudag.
- Kom aftur heim á föstudagskvöldið.
- Líka Stína, Brad, Aldís, Anna, Emmi, Elfa og Linda.
- Svo voru amma og afi hérna þegar við komum.
- Stuð.
- Djamm á laugardaginn.
- Sól og sumar.
- Sofa svolítið mikið.
- Atvinnuleit?
- Viktoría og Grétar farin til Danmerkur.
- Útlandaferð.
- Neglur á morgun!
Það er ekki eins og líf mitt sé búið að vera e-ð spennandi uppá síðkastið en ég væri samt alveg til í að fá aðeins fleiri comment hérna. Þetta er ekkert alveg að ganga. Aðeins þrír sem commentuðu seinast. Pff, ég sem hélt ég ætti vini. :D
Svo er ég komin með mæspeis síðu. www.myspace.com/sandraemm
Ég kveð í bili og vona að þið eigið æðislega næstu daga. ;)
Np: Beautiful Girls - Sean Kingston
"You'll have me suicidal, suicidal"
- Sandraemm ! .. VODD!
...
05. júní 2007 klukkan 16:27
Hæææ!
Nú er ég búin að flytja. Í þriðja skiptið á 2 árum. Jeij. Gæti ekki verið skemmtilegra. Var að fá netið áðan. Búin að vera netlaus síðan á fimmtudaginn! Það er sko afrek fyrir mig að vera ekki á netinu í svo langan tíma. Enda var það erfitt.
Sandra og Breki freki eru í burtu! Er ekki búin að sjá þau í 2 vikur ef ekki meira! I'm going crazy hérna! En þau koma heim á föstudaginn. :D Þá er sko eins gott að þið hittið mig strax!!!!!
Það er ekki mikið búið að vera að gerast í lífi mínu síðan ég bloggaði seinast. Bara svona þetta vanalega, nema ég var að vinna í einhverjar 2 vikur við að taka netið af varnagörðunum á Flateyri. Og er orðin atvinnulaus aftur. Langar bara mest að fara suður og vinna þar eins og kreisí person! Oh well ..

Nóg í bili.
Np: Big Girl's Don't Cry - Fergie
- Sandra M. kveður
Np: Big Girl's Don't Cry - Fergie
- Sandra M. kveður